Enginn aukakostnaður. 5 ára ábyrgðin er innifalin í verðinu! Nánari upplýsingar má finna í ábyrgðarskilmálunum.
Grillstillingin færir matvælunum fullkominn gullinn lit, hvort sem það eru stökkir kjúklingavængir, mozzarellaostur eða grillað grænmeti.
Blástursofn dreifir heitu lofti jafnt um allan ofninn sem flýtir fyrir eldun og auðveldar þér að matreiða fleiri rétti í einu. Það getur skipt sköpum fyrir heimilislífið – og baksturinn og ofnsteikinguna.
Dragðu úr ójafnri eldun – með undir- og yfirhita færð þú gullna og stökka áferð á öllum hliðum. Hentar vel fyrir bragðgóðar pizzur og hægeldaða pottrétti.
Hitasundrandi sjálfhreinsibúnaður brennir fitu og matarleifar niður í ösku – sem þú þurrkar svo auðveldlega í burt. Þægilegur tímasparnaður sem heldur ofninum eins og nýjum.
Gufustillingin sér til þess að maturinn eldist og haldi bragði vel. Hún hjálpar til við að láta deig hefa sig og gefur brauðmetinu góða skorpu sem er einstaklega gott þegar þú bakar brauð, möffins og frosið sætabrauð.
LED skjár með snertitökkum gerir það að verkum að auðvelt er að fylgjast með tíma, hitastigi og framvindu með léttri snertingu.
Ofnarnir í IKEA 500 línunni gefa þér aukabúst í eldhúsinu með fjölbreyttum eiginleikum sem auðvelda þér daglegt líf og gera þér kleift að fara ótroðnar slóðir í eldamennskunni.
FRILLESBO línan kemur í ryðfríu stáli með traustum stáltökkum og höldum sem færir henni stílhreint útlit sem passar vel nútímaheimilum. Hurðir með glæru eða reyklituðu gleri gera þér kleift að fylgjast vel með matvælunum eldast.
Brautir sem dragast 3/4 út auðvelda þér að fylgjast með matnum og taka úr og setja í ofninn.
Á ofninum er barnalæsing og sérstaklega hitaeinangrandi hurð fyrir svalara yfirborð, sem fer fram úr kröfum ESB – til að vernda forvitnar hendur.
Til að gera eldamennskuna þægilegri skaltu íhuga að setja ofninn í vinnuhæð. Þá hefur þú góða yfirsýn yfir matinn og það verður auðveldara að setja í og taka úr ofninum.
Paraðu ofninn þinn við örbylgjuofn/ofn með blæstri til að auka möguleikana í eldamennskunni. Bæði upphitun og afþíðing taka stutta stund og örbylgjuofn/ofn með blæstri eykur afkastagetuna í eldhúsinu – fullkomið fyrir stóra skammta og hátíðarmáltíðirnar.