Með 2 ára ábyrgð! Nánari upplýsingar má finna í ábyrgðarskilmálunum.
Dragðu úr ójafnri eldun – með undir- og yfirhita færð þú gullna og stökka áferð á öllum hliðum. Hentar vel fyrir bragðgóðar pizzur og hægeldaða pottrétti.
Það er auðvelt að snúa tökkunum til að stilla ofninn eftir þínum þörfum.
LAGAN línan býður upp á einfalda og stílhreina hönnun og nauðsynlegar stillingar til að auðvelda þér lífið í eldhúsinu. Einfalt val á ómótstæðilegu verði.
Til að gera eldamennskuna þægilegri skaltu íhuga að setja ofninn í vinnuhæð. Þá hefur þú góða yfirsýn yfir matinn og það verður auðveldara að setja í og taka úr ofninum.
Paraðu ofninn þinn við örbylgjuofn/ofn með blæstri til að auka möguleikana í eldamennskunni. Bæði upphitun og afþíðing taka stutta stund og örbylgjuofn/ofn með blæstri eykur afkastagetuna í eldhúsinu – fullkomið fyrir stóra skammta og hátíðarmáltíðirnar.