STENABY
Blástursofn,
/stállitt IKEA 500

69.950,-

69950

STENABY
Varan er afgreidd úr vöruhúsi IKEA og því er vöruvöktun ekki í boði. Vinsamlega hafðu samband við þjónustuver eða komdu í verslunina til að leggja inn biðpöntun.
STENABY

STENABY

69.950,-
Vefverslun: Uppselt

5 ára ábyrgð

Þú getur eldað á nokkrum hæðum og stillt grindurnar og því er enn auðveldara að baka eða glóðarsteikja gómsæta rétti.

Enginn aukakostnaður. 5 ára ábyrgðin er innifalin í verðinu! Nánari upplýsingar má finna í ábyrgðarskilmálunum.

Blástursofn dreifir heitu lofti jafnt um allan ofninn sem flýtir fyrir eldun og auðveldar þér að matreiða fleiri rétti í einu. Það getur skipt sköpum fyrir heimilislífið – og baksturinn og ofnsteikinguna.

Dragðu úr ójafnri eldun – með undir- og yfirhita færð þú gullna og stökka áferð á öllum hliðum. Hentar vel fyrir bragðgóðar pizzur og hægeldaða pottrétti.

Gufueldun gerir þér einnig kleift að þrífa ofninn á auðveldan hátt, sjálfhreinsibúnaðurinn notar gufu til að leysa upp fitu og matarleifar svo þrifin verða ekkert mál – og þú þarft ekki að nota nein hreinsiefni.

Gufustillingin sér til þess að maturinn eldist og haldi bragði vel. Hún hjálpar til við að láta deig hefa sig og gefur brauðmetinu góða skorpu sem er einstaklega gott þegar þú bakar brauð, möffins og frosið sætabrauð.

LED skjár með snertitökkum gerir það að verkum að auðvelt er að fylgjast með tíma, hitastigi og framvindu með léttri snertingu.

Ofnarnir í IKEA 500 línunni gefa þér aukabúst í eldhúsinu með fjölbreyttum eiginleikum sem auðvelda þér daglegt líf og gera þér kleift að fara ótroðnar slóðir í eldamennskunni.

STENABY línan færir heimilinu hefðbundið útlit sem hnúðar og höldur úr ryðfríu stáli leggja áherslu á. Þú getur valið úr hvítu, svörtu eða stállitu eftir þínum stíl.

Svipaðar vörur

Fleiri vörur úr sömu vörulínu

Vörur sem þú skoðaðir síðast