Skynsemi og fegurð er góð blanda. Þynnan þolir raka, rispur og högg. Viðarmynstrið er fallegt og gefur yfirborðinu náttúrulegt og líflegt yfirbragð.
Borðplatan hentar vel í rými þar sem raki eða bleyta safnast fyrir og er þess vegna sniðug fyrir þvottaaðstöðu inni á baðherberginu.
Bættu ENHET snögum og SKATTÅN ílátum við hliðarnar til að hengja upp handklæði og fá meira hirslupláss. Selt sér.
Það er gott að hafa vask hjá þvottaaðstöðunni, til dæmis til að þvo í höndunum eða fylla/tæma skúringarfötu. Í neðri skápnum er rúmgott geymslurými fyrir stærri hluti.
Skáparnir gefa stílhreint yfirbragð og eru með nóg pláss fyrir handklæði, hreinsiefni og ræstivörur.
Auðvelt er að færa þvottakörfurnar því þær eru á hjólum. Stækkanleg slá nýtir annars ónotað pláss vel.