Passar í mjóar hillur sem eru minnst 13 cm á dýpt og í hillur í ENHET línunni sem eru 15 cm á dýpt.
Hjálpar þér að koma skipulagi á smáhlutina sem eiga það til að hverfa og passar jafnvel í hillu í stofunni og baðskáp.
Ef þú vilt verja hlutina þína fyrir ryki og óhreinindum eða stafla saman nokkrum kössum getur þú notað KUGGIS lok sem er selt sér.
Úr endingargóðu plasti sem er að hluta til endurunnið. Hluti af KUGGIS línunni þar sem allar stærðir passa saman.
Kassarnir og lokin í KUGGIS línunni fást í mismunandi stærðum og litum svo þú getur blandað þeim saman þannig að henti smekk þínum, plássi og þörfum.