3.990,-
Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
TRÅDFRI
LED lýsing notar allt að 85% minna af orku og endist um tuttugu sinnum lengur en hefðbundin glópera.
Með LED snjallljósaperu getur þú deyft og breytt litnum á ljósinu og þannig lagað lýsinguna að því sem þú ert að gera hverju sinni. Hafðu til dæmis daufa og hlýlega birtu yfir matarborðinu og bjartari, kaldari birtu fyrir vinnu.
Settið er klárt, það eina sem þú þarft að gera er að skrúfa ljósaperuna í lampann og byrja að nota ljósastýringuna.
Hey! Þú þarft tvær AAA rafhlöður fyrir STYRBAR fjarstýringuna. Þær eru seldar sér.
Fjarstýringin er prófuð og samþykkt fyrir notkun á baðherbergi (IP44).
Þú getur notað fjarstýringuna á allt að tíu snjallljósgjafa sem bregðast allir við á sama hátt.
Með fjarstýringunni getur þú valið á milli níu mismunandi lita og litatóna.
Það er hægt að velja liti, breyta ljóslitnum úr köldum í hlýjan, deyfa, kveikja og slökkva með fjarstýringunni.
Plast er sá efniviður sem við hjá IKEA notum hvað mest og við munum halda því áfram. Það er sterkt, endingargott, létt og fjölhæft. Plastið er í ýmsum hlutverkum hjá okkur, oft er það aðalefnið í vörunni eða í yfirborðsefnum eins og málningu og þynnu en einnig í íhlutum eins og skrúfum og hillupinnum. Það þarf að gæta að því hvaða áhrif plast hefur á umhverfið og IKEA tekur þeim áskorunum mjög alvarlega. Sem hluti af vegferð okkar til hringrásarkerfis, og áætlun okkar um að víkja frá notkun efniviðar sem byggður er á hráolíu, vinnum við hörðum höndum að því að breyta öllu plasti sem notað er í vörurnar okkar í plast sem unnið er úr endurunnum og/eða endurnýjanlegum hráefnum.
Plast er að mestu leyti framleitt úr olíu eða gasi sem eru óendurnýjanleg jarðefni. Þessar auðlindir endurnýjast ekki og munu að endingu tæmast. Við höfum sett okkur það markmið að fyrir 2030 verði allt plast sem notað er í vörurnar okkar vera unnið úr endurnýjanlegum eða endurunnum efnum. Endurnýjanlegt plast er unnið úr efnum eins og jurtaolíu, maís, hveitikorni eða sykurreyr. Endurunnið plast gerir okkur kleift að gefa ólífbrjótanlegum vörum eins og PET-flöskum annað líf í stað þess að enda í landfyllingu. Endurunnin efni gera það að verkum að við þurfum minna að reiða okkur á olíu sem hráefni. Eins og er eru meira en 40% af plastvörunum okkar úr endurunnu og endurnýjanlegu plasti og við stefnum á að ná því upp í 100%. Þegar við bætum vörum úr endurunnum og endurnýjanlegum efnum við vöruúrval okkar vonumst við til þess að það hafi hvetjandi áhrif á önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama.
Vörur úr einnota plasti hafa mengandi áhrif á umhverfið sé þeim ekki fargað á réttan hátt. Sem hluti af umhverfisstefnu okkar voru einnota plastvörur teknar úr vöruúrvali okkar árið 2020. Það náði einnig yfir diska, glös og sogrör sem í boði voru á veitingastöðunum okkar. Þeim hefur nú verið skipt út fyrir vörur úr 100% endurnýjanlegum hráefnum.
Pólýetýlen terephthalat (PET) og pólýprópýlen (PP) eru endingargóðar, hreinlátar og höggþolnar plasttegundir. Þar draga ekki mikinn vökva í sig og þola vel ýmis efni. Bæði PET og PP er hægt að endurnýta og endurvinna sem dregur úr úrgangi ásamt því sem endurnýting veitir vörunni lengri endingartíma. PET er það plast sem mest er notað í heiminum og það er meðal annars notað í plastflöskur og ílát fyrir matvæli, drykkjarvörur, hreinlætisvörur, lyf og fjölda annarra neytendavara. Við hjá IKEA notum PET aðallega í kassa, fylliefni fyrir vefnaðarvörur og yfirborðsþynnur á eldhúsframhliðar. PET er samþykkt til notkunar fyrir matvæli og drykkjarföng af heilbrigðisyfirvöldum. Við hjá IKEA notum endurunnið PET-plast sem er unnið úr flokkuðum PET-flöskum sem hafa borist til endurvinnslu.
IKEA leggur mikla áherslu á öryggi og allar vörurnar okkar eru prófaðar til að tryggja að þær standist ströngustu lög og öryggisstaðla á öllum okkar mörkuðum. Viðskiptavinir IKEA eiga að geta reitt sig á að allar vörur sem keyptar eru í IKEA séu öruggar og án skaðlegra efna. IKEA lágmarkar eða bannar (þegar mögulegt er) notkun á öllum efnum og efnasamböndum sem geta haft skaðleg áhrif á fólk og umhverfi.
Vegferð okkar í átt að því að nota einungis endurunnið eða endurnýjanlegt plast mun taka tíma og krefjast nýrra leiða í að gera hlutina, en við erum staðráðin í því að taka ábyrgð og finna nýjar lausnir. Við viljum bjóða viðskiptavinum okkar upp á vörur úr sjálfbærari efnum sem hægt er að endurvinna aftur síðar. Saman getum við skipt sköpum!
ABS-plast er sterkt og stöðugt efni með gljáandi yfirborð – og það hentar vel í ýmsa hversdagslega hluti eins og hnífaparaskúffur, eldhúsáhöld, tannburstaglös og snaga á baðherberginu. ABS-plast er unnið úr olíu, sem er óendurnýjanlegt hráefni, en við vinnum stöðugt að framþróun og notum sífellt meira af endurunnu ABS-plasti í vörurnar okkar. ÞAð er mikilvægt skref í átt að markmiði okkar að nota eingöngu plast sem er endurunnið eða unnið úr endurnýjanlegum auðlindum.
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
Vörunúmer 604.624.32
1 pakkning(ar) alls
Þurrkaðu af með þurrum klút.
Með STYRBAR þráðlausri fjarstýringu getur þú deyft lýsinguna án þess að hafa veggtengdan ljósdeyfi.
Fjarstýringin nær yfir allt að 10 metra fjarlægð, ef engir veggir eru fyrir geislanum.
Inniheldur: STYRBAR fjarstýringu (L72×B72×H18 mm) og TRÅDFRI ljósaperu sem má nota með dimmi (E27, 806 lúmen).
Þessi vara er hluti af snjallheimilisvörunum okkar. Tengdu hana ásamt öðrum snjallvörum við DIRIGERA stjórnstöð fyrir snjallvörur og IKEA Home smart appið fyrir fleiri aðgerðir og eiginleika.
Einnig er hægt að tengja snjallvöruna við TRÅDFRI gátt.
Rafhlöður eru seldar sér. Notaðu tvær AAA rafhlöður.
Gátt fyrir snjallvörur er seld sér.
Fjarstýringin helst við veggfestinguna eða önnur yfirborð úr málmi þar sem hún er með segli.
Aðeins hægt að nota með IKEA ljósastýringarvörum.
Orkunotkun í biðstöðu: 0,3 W.
Varan er CE-merkt.
Samþykkt fyrir IP44.
Tegundarheiti | IKEA |
Tegundarauðkenni | LED1924G9 |
Orkuflokkur | A+ |
Vegin orkunotkun | 9kWst/1.000 klst |
Uppgefið ljósstreymi | 806Lumen |
Uppgefinn líftími | 25000h |
Fjöldi kveikja/slökkva umferða | 25000þvottar |
Litarhitastig | 2700kelvin |
Upphitunartími í 60% af fullu ljósmagni | < 1 sec |
Dimmanlegt | Nei |
Þráðlaust dimmanlegt | Já |
Málafl í vöttum | 8,9Vatt |
Skilgreint ljósstreymi | 806Lumen |
Skilgreindur líftími lampa | 25000h |
Aflstuðull lampa | 0,7 |
Ljósstreymisheldnisstuðull við enda uppgefins líftíma | 70% |
Kveikitími | 0,5sekúndur |
Litaendurgjöf | 90 |
Lengd: | 15 cm |
Breidd: | 8 cm |
Hæð: | 8 cm |
Heildarþyngd: | 0,27 kg |
Nettóþyngd: | 0,14 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 1,0 l |
Tegundarheiti | IKEA |
Tegundarauðkenni | LED1924G9 |
Orkuflokkur | A+ |
Vegin orkunotkun | 9kWst/1.000 klst |
Uppgefið ljósstreymi | 806Lumen |
Uppgefinn líftími | 25000h |
Fjöldi kveikja/slökkva umferða | 25000þvottar |
Litarhitastig | 2700kelvin |
Upphitunartími í 60% af fullu ljósmagni | < 1 sec |
Dimmanlegt | Nei |
Þráðlaust dimmanlegt | Já |
Málafl í vöttum | 8,9Vatt |
Skilgreint ljósstreymi | 806Lumen |
Skilgreindur líftími lampa | 25000h |
Aflstuðull lampa | 0,7 |
Ljósstreymisheldnisstuðull við enda uppgefins líftíma | 70% |
Kveikitími | 0,5sekúndur |
Litaendurgjöf | 90 |
Vörunúmer 604.624.32
Vörunúmer | 604.624.32 |
Tegundarheiti | IKEA |
Tegundarauðkenni | LED1924G9 |
Orkuflokkur | A+ |
Vegin orkunotkun | 9kWst/1.000 klst |
Uppgefið ljósstreymi | 806Lumen |
Uppgefinn líftími | 25000h |
Fjöldi kveikja/slökkva umferða | 25000þvottar |
Litarhitastig | 2700kelvin |
Upphitunartími í 60% af fullu ljósmagni | < 1 sec |
Dimmanlegt | Nei |
Þráðlaust dimmanlegt | Já |
Málafl í vöttum | 8,9Vatt |
Skilgreint ljósstreymi | 806Lumen |
Skilgreindur líftími lampa | 25000h |
Aflstuðull lampa | 0,7 |
Ljósstreymisheldnisstuðull við enda uppgefins líftíma | 70% |
Kveikitími | 0,5sekúndur |
Litaendurgjöf | 90 |
Vörunúmer 604.624.32
Sjálfgefið ljósstreymi: | 806 Lumen |
Sjálfgefið litarhitastig: | 2700 kelvin |
Hæð: | 120 mm |
Þvermál: | 60 mm |
Orkunotkun: | 8,9 W |
Vörunúmer: | 604.624.32 |
Pakkningar: | 1 |
Lengd: | 15 cm |
Breidd: | 8 cm |
Hæð: | 8 cm |
Heildarþyngd: | 0,27 kg |
Nettóþyngd: | 0,14 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 1,0 l |
Finndu vöruna í versluninni
1 pakkning(ar) alls