Þessi snjallvara styðst við alþjóðlega Matter-staðalinn sem gerir hana auðvelda í uppsetningu, notkun og tengingum við DIRIGERA gáttina og önnur þekkt kerfi.
Lekaskynjarinn lætur vita ef vatn byrjar að leka með því að gefa frá sér hljóð þegar hann kemst í snertingu við vatn – og hjálpar þér að gera heimilislífið þægilegra, einfaldara og öruggara.
Hann er lítill og kemst því vel undir vask, heimilistæki eða aðra staði þar sem gæti lekið.
Þegar skynjarinn er tengdur við gátt sendir hann tilkynningu í símann þinn ef hann verður var við vatnsleka.
Gengur fyrir einni AAA LADDA hleðslurafhlöðu sem einfalt er að skipta um, seld sér.