PÅTÅR
Filterkaffi, malað,
500 g, meðalristað lífrænt/Rainforest Alliance-vottað

995,-

Magn: - +
PÅTÅR
PÅTÅR

PÅTÅR

995,-
Vefverslun: Til á lager
Svíar drekka mikið kaffi – og þeir eru vandlátir. Þess vegna er kaffið okkar vottað af Rainforest Alliance og brennt eftir kúnstarinnar reglum til að við fáum besta kaffið sem völ er á. Gott kaffi fyrir sanna kaffiunnendur.
PÅTÅR filterkaffi, malað

Kaffiást Svía færir þér lífrænar baunir

Kaffiást Svía færir þér lífrænar baunir

Líklega drekkur þú kaffi reglulega. Ef þú ert Svíi er það nánast gefið – Svíar eru meðal helstu kaffineytenda heims. Því kemur það varla á óvart að sænskt fyrirtæki eins og IKEA sé staðráðið í að bjóða upp á góðar kaffibaunir. En það er ekki bara bragðið sem skiptir máli. Gæði og sjálfbærni eru einnig í forgangi. Galdurinn er að hafa þetta allt til staðar. Við teljum að við höfum náð því með PÅTÅR.

Allar kaffibaunir frá IKEA eru Rainforest Alliance-vottaðar. „Við höfum unnið í mörg ár með Rainforest Alliance því það samræmist siðareglum IKEA, IWAY, “ segir Henrik Ringdal vöruhönnuður sem kom að vöruþróun PÅTÅR kaffisins. „Það tryggir að ekki eingöngu kaffið sé í hæsta gæðaflokki, heldur einnig að vel sé séð um ræktendur og vinnufólk,“ útskýrir hann. Rainforest Alliance vinnur með kaffibændum við að bæta ræktunaraðferðirnar. Það hjálpar til við að lækka verð og auka uppskeruna og gæði hennar. Vinnufólkið fær mannsæmandi laun og bændurnir auka tekjur sínar.

Kaffi sem er betra fyrir ræktendur og neytendur

Rainforest Alliance-vottun er þó bara byrjunin. „Við viljum líka að ræktun baunanna stuðli að betri jarðvegi, hafi minni loftslagsáhrif og veiti kaffibændum betra líf,“ segir Sharla Halvorson, yfirmaður heilsu og sjálfbærni hjá IKEA Food.

Gæðabaunir með gott bragð

Það eru eingöngu notaðar 100% Arabica-baunir í IKEA kaffið, baunategund sem almennt er talin mjög bragðgóð. Með því að auka gæði baunanna færð þú enn betri kaffibolla. PÅTÅR er sænska orðið yfir ábót á kaffið. Eitthvað sem við vonum að þú og vinir þínir fáið ykkur.

Sjá meira Sjá minna

People and Communities

Hvað gerir kaffi gott?

PÅTÅR kaffið okkar er bæði lífrænt og Rainforest Alliance-vottað. Rétt eins og kaffið sem við bjóðum upp á IKEA veitingastöðunum og IKEA Bistro. Baunirnar eru 100% Arabica og eru ræktaðar á fjölda lítilla kaffibýla í löndum eins og Mexíkó, Perú og Hondúras. Við blöndum svo og ristum baunirnar svo úr verður þetta fínasta kaffi sem finna má í IKEA verslununum. Taktu þér tíma með PÅTÅR – ábót – vitandi það að það er sannarlega gott kaffi.

Eiginleikar

Gott kaffi fyrir kaffiunnendur

Svíar eru meðal mestu kaffineytenda í heiminum – og þeir vandlátustu. Enda er „fika“ (pása með kaffi og sætabrauði) einn af hornsteinum sænskrar menningar, Því erum við varfærin með PÅTÅR kaffið og kaffið sem við seljum á veitingastöðunum okkar. Það er Rainforest Alliance-vottað, lífrænt ræktað og frá smærri kaffibaunabýlum. Við blöndum baunirnar sem eru 100% Arabica og ristum þær til að gera besta kaffi sem hægt er að hugsa sér. Gott kaffi fyrir sanna kaffiunnendur.


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X