HUVUDROLL
Laxa- og þorskbollur,
500 g, ASC-vottað/MSC-vottað frosið

1.290,-

HUVUDROLL
HUVUDROLL

HUVUDROLL

1.290,-
Aðeins fáanlegt í verslun
Hér er ein af ástæðunum: Safaríkar fiskibollur með bragði frá sjónum og áferð sem er engri lík. Þorskurinn gerir þær enn bragðbetri.
HUVUDROLL laxa- og þorskbollur

Gott hlaðborð

Uppskriftin sem við notum í hefðbundnu IKEA kjötbollurnar er frá árinu 1985. Síðan þá hafa IKEA kjötbollurnar verið heimsþekktar og gott dæmi um hefðbundna sænska matargerð. En þegar við spurðum viðskiptavini, í þremur heimsálfum, hvernig mat þeir kysu áttuðum við okkur á því að við þyrftum að stækka kjötbolluúrvalið með öðrum bragðgóðum valkostum.

„Það borða ekki allir nauta- eða svínakjöt, og því fórum við inn í eldhús að búa til nýjar uppskriftir.“ segir David Johansson, matreiðslumaður og vöruhönnuður hjá IKEA Food Services. Fyrst komum við með kjúklingabollurnar sem er valkostur fyrir þá sem vilja kjöt, en kannski ekki rautt kjöt. „Þær eru góðar bæði heitar og kaldar, eins og hefðbundnu kjötbollurnar okkar, og við höfum kryddað þær varlega svo þær passi í mismunandi matargerð og þeim hráefnum sem fást á hverjum stað fyrir sig.“

Vinsældir gegn loftslagsbreytingum

Sjálfbærni var einnig drifkrafturinn þegar við komum með nýjungarnar. „Með grænmetisbollunum vildum við bjóða upp á eitthvað sem væri vel metið eins og hefðbundnu kjötbollurnar, en úr grænmeti og hefði því minni umhverfisáhrif,“ útskýrir David. Grænmetisbollurnar hafa tuttugu sinnum minna loftslagsspor en þær hefðbundnu, og kjúklingabollurnar fjórum sinnum minna. Með fleiri valkostum getur þú ekki einungis valið á milli uppáhaldsbollanna þinna, þú getur einnig valið um hversu mikil umhverfisáhrif máltíðin hefur.

Nýtt bragð í gömlum búningi

Síðasti, en alls ekki sísti valkosturinn í kjötbolluúrvali IKEA eru laxa- og þorskbollurnar. Þær innihalda laxabita sem eru of litlir í flök. „Við hugsuðum, því ekki að nota þessa bita í gómsætar fiskibollur?“ segir David. Hann minnist einnig á fleiri nýjungar sem eru væntanlegar. Þær verða úr jurtaprótíni, en bragðast og líta út fyrir að vera úr kjöti. Það eru góðar fréttir fyrir kjötunnendur sem vilja vera aðeins sjálfbærari af og til. „Margt hefur breyst síðan 1985. Nú geta fleiri fengið þekktasta réttinn okkar. Hvort sem mataræðið er almennt, vegan, sérfæði eða taki mið af menningarlegum hefðum.“

Sjá meira Sjá minna

Form/Hönnunarferli

Himneskt bragð úr sjónum

Hugsaðu þér ferskt sjávarfang, himneskt bragðið og safarík áferðin – þá skilur þú hvers vegna við elskum HUVUDROLL laxa- og þorskbollurnar. Berðu þær fram með tómata- og spínat-ragú, smjörkenndri sítrónu- og dillsósu og jafnvel blómkálsmús og grænum baunum – bollurnar henta í marga mismunandi rétti. Þær eru ASC (laxinn) og MSC (þorskurinn) vottaðar og það er auðvelt að matreiða þær beint úr frystinum, í ofni, örbylgjuofni eða á pönnu – allt eftir þínum smekk.


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X