SÖDERHAMN sófarnir eru djúpir, lágir og mjúkir og lausir púðar við bakið gefa góðan stuðning
10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Það er auðvelt að halda áklæðinu hreinu þar sem þú getur þvegið það í þvottavél og það er lítið mál að fjarlægja það og setja aftur á.
Búðu til samsetningu með teikniforritinu. Settu saman, taktu í sundur og settu aftur saman þar til allt er fullkomið.
Kelinge áklæðið er úr mjúku pólýester. Flauelsefnið er með breiðum rifflum, þægilegt og mjúkt viðkomu og með örlitlum gljáa sem gefur því fallegan og notalegan blæ.
Létt og opin hönnun með háum fótum og þunnum línum en samt mjög þægileg vegna teygjunnar í botninum og eftirgefanlega svampsins í sessunum.
Sófaeiningarnar koma vel út einar og sér en þú getur einnig raðað þeim saman á mismunandi vegu til að fá þá stærð og lögun sem hentar þér og heimilinu.
Ef þú þarft stærri sófa getur þú bætt við einingum eftir þörfum.
Háir fætur auðvelda þér að þrífa gólfið undir húsgagninu.