SÖDERHAMN
Grind, armur

8.000,-

6.000,-

Nýtt lægra verð


Magn: - +
SÖDERHAMN

SÖDERHAMN

8.000,-
6.000,-
Vefverslun: Til á lager

Sætiseiningar sem hægt er að tengja saman á mismunandi vegu eða hafa einar og sér.

Hugleiðingar hönnuða

Ola Wihlborg hönnuður

„Hugmyndin að baki SÖDERHAMN sófanum er að fólk búi til sína eigin samsetningu með því að raða saman mismunandi einingum á þann hátt sem hentar heimilinu. Ein af áskorununum í hönnunarferlinu var að hugsa á umhverfisvænan hátt frá upphafi og að nýta hráefnið vel. Þess vegna notuðum við plastvefnað í neðri hluta sófans, sem ásamt sætispúðunum, gera sófann léttan og fjaðrandi. Það skapar líka létta yfirbragðið sem við vildum hafa á sófanum.“

Energy and Resources

Mikil þægindi og lítil umhverfisáhrif

SÖDERHAMN línan er frábært dæmi um hvernig við finnum nýjar leiðir til að nýta hráefni sem best. Einingarnar eru afgreiddar í flötum pakkningum, þannig að við náum að draga úr flutningi og lágmarka losun koltvísýrings – og halda verðinu lágu. Hver segir að þægindi þurfa að kosta mikið?

Samantekt

Sófi fyrir alla

Það væri dálítið skrýtið ef allir vildu eins sófa, ekki satt? Þess vegna er SÖDERHAMN línan byggð á endingargóðum og þægilegum einingum sem þú getur raðað saman hvernig sem þú vilt. Ertu að leita að stórum sófa eða litlum? Vilt þú notalegt horn til að kúra í? Með SÖDERHAMN færðu frelsi til að raða saman einingum í sófa sem hentar þér – möguleikarnir eru endalausir.

Eiginleikar

Raðaðu eins og þú vilt

SÖDERHAMN sófalínan samanstendur af einingum sem þú getur raðað saman eins og hentar þér og heimilinu þínu. Þú getur líka breytt sófanum hvenær sem þú vilt – ýmist þegar hann þarf að gegna öðru hlutverki eða bara þegar þú vilt skemmtilega tilbreytingu.

Gæði

Þægindi á nýjan hátt

Þegar við gerðum SÖDERHAMN vildum við nota hráefnið á skynsaman­ hátt og búa til virkilega þægilegan sófa með léttu yfirbragði. Þess vegna fórum við dálítið öðruvísi að en venjulega og notuðum teygjanlegt efni í botninn á sófanum. Með sófapúðunum skapar það mjúka og fjaðrandi tilfinningu. Við þetta bættum við djúpum sætum og lausum bakpúðum þannig að þú getur alltaf komið þér vel fyrir í sófanum.


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X