PAX
Fataskápur,
75x35x236, hvítt

14.950,-

12.950,-

Nýtt lægra verð


ekkert valið
Magn: - +
PAX
PAX

PAX

14.950,-
12.950,-
Vefverslun: Til á lager
Dreymir þig um fallegan fataskáp fyrir svefnherbergið? Hér er lausnin fyrir þig! Byrjaðu á grunnskápunum, næst bætir þú KOMPLEMENT hirslum við fyrir fötin, skóna og aukahluti. Að lokum gerir þú hann að þínum með því að velja hurðir sem eru í uppáhaldi.
PAX fataskápur

Því ein stærð passar ekki öllum

Líttu í kringum þig – láttu fara lítið fyrir því, kíktu bara aðeins. Jafnvel þó munurinn sé aðeins sá að sokkarnir eða trefillinn sé í öðrum lit, eru líkur á að enginn sé nákvæmlega eins klæddur og þú.

Því gefur að skilja að fatahirslur ættu ekki heldur að vera eins fyrir alla. Þessi hugmyndafræði leiddi af sér PAX/KOMPLEMENT fata- og skóhirslurnar. Hannaðar til að aðlagast þínum stíl, ástríðu eða fatastíl svo að öll fötin þín og fylgihlutirnir eigi sér stað.

Þróun hirslunnar

Það þarf bara að renna í gegnum gamlar myndir til að lenda í því að hugsa með sér: „Hvað var ég að spá þegar ég klæddist þessu?“ Og þar sem fatastíllinn hefur breyst með árunum, þá hefur IKEA einnig breytt nálgun sinni þegar það kemur að fatahirslum. Þess vegna hönnuðum við PAX/KOMPLEMENT fata- og skóhirslur til að aðlagast því hvernig þú vilt geyma hlutina þína, frekar en að reyna að láta fötin og fylgihlutina passa í óhentugt rými. Hugmynd sem hefur haft mikil áhrif á hönnunina.

Einstakleikinn er það eina sem er sameiginlegt

„Flestir óska sér að eiga skipulagðan fataskáp þar sem öll föt og fylgihlutir sjást vel. En þar með er það sem fólk á sameiginlegt upptalið“ segir Betina Tviis Larsson einn vöruhönnuða sem hannaði PAX/KOMPLEMENT fataskápana. Hefðbundnar fatahirslur neyða þig oft til þess að gera hlutina á ákveðinn hátt, hvort sem það er að brjóta saman stutterma boli eða skipta niður sokkaskúffunni – eitthvað sem Betina vildi forðast í PAX/KOMPLEMENT. „Við vildum ekki segja að þetta væri rétta eða ranga leiðin til að geyma fötin. Ef þú vilt geta hengt upp gallabuxurnar á beltishönkunum þá átt þú að geta það“, segir Betina.

Fyrir mismunandi persónuleika

Til að koma hönnunarferlinu í gang einblíndi hönnunarteymið á hvernig hirslur mismunandi fólk þyrfti. „Við byrjuðum á því að tala við fólk innan teymisins og innan IKEA samfélagsins“, útskýrir Betina. „Til að reyna að finna ólíka persónuleika með mismunandi þarfir. Niðurstaðan var langur listi af óskum og mismunandi hlutum sem þurfti að geyma“. Til að reyna að hanna fyrir hverja og eina persónu fann hönnunarteymið lausnir sem henta jafnt söfnurum og fjölskyldum sem og þeim sem aðhyllast mínimalískum lífsstíl og þeim sem búa í mjög takmörkuðu rými. „Hugmyndin sem við unnum með var; ekki breyta persónuleika þínum, breyttu fataskápnum,“ segir Betina.

Frá hugmynd að virkni

Að endingu varð til fjöldinn allur af innvolsi sem hentar mismunandi þörfum og aðstæðum, allt frá skúffum og herðatrjám sem hægt er að geyma fjölda hluta á að sértækari hirslum fyrir skó, buxur eða skartgripi. Markmiðið er að hver og einn geti raðað innvolsinu saman eftir þörfum svo að ef þú vilt geyma allt skósafnið inni í skáp eða láta öll fötin þín hanga á herðatrjám, þá er það mögulegt. „Ég vil nýta plássið virkilega vel“, segir Betina. „Með þessum línum er þér gert kleift að sérsníða fataskápinn þinn á mismunandi vegu.“ Svo hvort sem þú ert snyrtipinna- eða hrúgutýpa vonumst við til þess að þú finnir þér hirslu sem hentar þínum stíl.

Sjá meira Sjá minna

Samantekt

Hafðu reglu á heimilinu

PAX fataskáparnir fást í mismunandi stærðum og útliti. Einnig fæst KOMPLEMENT innvols sem er sérstaklega hannað til þess að þú getir aðlagað þá að innan að þínum þörfum. Þú velur svo þá hurð sem þér finnst fallegust.

Efni

Hvað er spónaplata?

Spónaplata er unnin úr endurunnum við og afgöngum frá sögunarverksmiðjum – þannig verður viður sem ekki er í réttum lit, viðarflísar og sag að auðlind í stað þess að enda mögulega sem rusl. Við notum plöturnar í hluti eins og bókaskápa, rúmgrindur, sófa og eldhússkápa. Til að verja þær fyrir sliti og raka setjum við á þær lakk, viðarspón eða filmu sem bætir útlit húsgagnsins.

Eiginleikar

Renndu þeim frá og sparaðu pláss

Er plássið takmarkað? Með rennihurðum verður PAX fataskápur mjög hentugur fyrir lítil rými, eins og á gangi eða í litlu svefnherbergi. Notaðu svo KOMPLEMENT innvolsið til að gera skápinn jafn hentugan að innan.

Hvernig á að velja

Gerðu hann að þínu

Þú skipuleggur PAX fataskápinn að innan með KOMPLEMENT innvolsi. Hugsaðu um hvað þú vilt geyma og veldu svo innvolsið sem hentar þínum þörfum. Blandaðu saman hillum, fataslám, skúffum, skóhillum og hverju sem sem þú þarft.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X