Borðið er úr ryðfríu stáli – hreinlegu, sterku og endingargóðu efni sem ryðgar ekki og er auðvelt í þrifum.
Ef þú hefur gaman af garðrækt þá er eldhúseyjan tilvalin sem umpottunarstöð þar sem þú getur haft blómapotta og garðyrkjuáhöld innan handar.
Veitir auka geymslupláss fyrir borðbúnað og áhöld og vinnuaðstöðu til að undirbúa mat.
Á bakhlífinni eru þrír stillanlegir snagar fyrir eldhúsáhöld.
Viðurinn er endingargóður og hefur verið meðhöndlaður til að verjast betur sól, rigningu, blettum og öðru.
Raðaðu saman útihúsgögnum úr NÄMMARÖ línunni eins og þér hentar og búðu til heildstætt útirými.