Gardínuborðinn auðveldar þér að plísera gardínuna með RIKTIG gardínukrókum.
Gardínur með gardínuborða sem gerir þér kleift að hengja þær beint á stöngina með þar til gerðum vösum eða flipum. Þú getur líka hengt gardínuna á gardínubraut með hjólum og krókum.
Með hjólum og krókum skapast yfirleitt formlegra og fágaðra yfirbragð þar sem ekki sést í festingarnar.
Efnið er úr bómullar- og viskósblöndu sem er mjúk og hangir fallega.
Efnið dregur úr dagsbirtu og glampa. Það veitir notalegt næði þar sem fólk sér ekki inn. Þó er hægt að greina útlínur þegar það er dimmt úti en bjart inni.
Gardína sem er 250 cm á lengd er hentug ef þú vilt hengja hana upp fyrir ofan glugga.