Húsgagnið er þegar meðhöndlað með lagi af hálfgegnsæju viðarbæsi svo það endist lengur og þú getir notið náttúrueiginleika viðarins.
Liturinn helst lengur þar sem efnið upplitast ekki.
Þú getur haft nokkra stóla við höndina án þess að þeir taki meira pláss því þeir eru staflanlegir.
Tekur lítið pláss í geymslu því hægt er að fella borðið saman.
Úr endingargóðum og endurvinnanlegum akasíuvið af sjálfbærari uppruna.
Raðaðu húsgögnunum í ASKHOLMEN línunni saman eins og þér hentar og skapaðu samræmt útisvæði þar sem þú getur borðað, slakað á og eytt tíma með fjölskyldu og vinum.
Sterklegur og þægilegur stóll með örmum. Gott að sitja í löngum stundum úti, hvort sem það er grillveisla eða lestur góðrar bókar.