UPPSTÅ
Þroskaleikfang til að hamra,
marglitt

1.690,-

1690

Magn: - +
UPPSTÅ
UPPSTÅ

UPPSTÅ

1.690,-
Vefverslun: Til á lager
Barnið getur barið á pinnana eins og það vill. Þegar það er búið að berja alla pinnana niður þá er bara að snúa standinum við og byrja aftur. Hvetur barnið til að leika við þig eða vini sína og lærir að bíða eftir að röðin komi að því.
UPPSTÅ Þroskaleikfang til að hamra

Það er bæði skemmtilegt og nauðsynlegt að leika sér.

Lítil börn læra með leik. Þau æfa hreyfigetu og samhæfingu, þjálfa rökhugsun og öðlast nýja hæfni. UPPSTÅ leikfangalínan inniheldur leikföng sem eru sérstaklega hönnuð fyrir yngstu börnin – og öll sem vilja hamra, skoða, stafla og toga.

Þegar þú togar sæta broddgöltinn á eftir þér heyrast smellir í maganum á honum. Þegar þú stoppar hættir hljóðið. „Þetta er spennandi lærdómur fyrir barnið, að það geti stjórnað hljóðinu sjálft,“ segir Henrik Johansson hönnuður.

Heimurinn kannaður í gegnum leik

Henrik hefur hannað leikföng í meira en 20 ár og telur leik barna afar mikilvægan. „Leikur er leið barns til að kynnast umhverfinu. Okkur fullorðna fólkinu þykir oft mikilvægt að gera hlutina rétt, eins og að stafla kubbum upp á ákveðinn hátt. En börnum er ekki endilega umhugað um lokaútkomuna, þeim þykir spennandi að skoða hvernig hægt sé að stafla kubbunum.“ Leikfangið með pinnunum og hamrinum er sniðugt fyrir litlar hendur. „Það er skemmtilegt að hamra pinnana í gegn og sjá hversu fast er hægt að slá. Barnið þjálfar einnig samhæfingu sjónar og handa.“

Leikföng sem endast

Leikur snýst ekki bara um hreyfiþroska og rökhugsun. Hann eflir einnig ímyndunaraflið. UPPSTÅ línan er með fallegum myndum af dýrum í skóginum sem fara með barnið í ævintýraheim. „Við vildum hvetja til fjölbreyttra og opinna leikja. UPPSTÅ leikföngin eiga að endast árum saman, enda úr sterkum efnivið með endingargóðum litum.“ Þannig geta yngri systkini eða önnur börn notið góðs af.

Sjá meira Sjá minna

Vörur sem þú skoðaðir síðast