Það er auðvelt að ryksuga undir rúminu til að halda rýminu hreinu og rykfríu.
Einföld, fjölhæf hönnunin fer vel með öðrum svefnherbergishúsgögnum og passar fullkomlega í nútímalegt svefnherbergi.
Það er nægt pláss fyrir rúmfatahirslur undir rúminu – hentar vel fyrir aukasængur og kodda.
Það er þægilegt að halla sér upp að mjúka, bólstraða höfðagaflinum við lestur eða sjónvarpsáhorf uppi í rúmi.
Samsetningin er fljótleg – og sennilega auðveldari en þú heldur.