5 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Stillanlegar hillur úr hertu gleri sem gera þér kleift að laga rýmið að þínum þörfum.
Innbyggð vifta dreifir loftinu um allan kæliskápinn og viðheldur jöfnu hitastigi, þannig getur þú geymt hvaða matvæli sem er, hvar sem er í skápnum.
Sjálfvirka afþíðingin kemur í veg fyrir rakamyndun og því myndast ekki hrím eða klaki á matvælum eða tækinu sjálfu.
Með hraðfrystistillingunni getur þú lækkað hitastigið hratt, til að viðhalda ferskleika matvælanna og varðveita næringarefni, jafnvel þó magnið sé mikið.
Hægt er að láta hurðina opnast til hægri eða vinstri.
Innbyggð LED lýsing lýsir upp hvert horn. Ljósgjafi án viðhalds, á að endast allan líftíma tækisins og auðveldar þér að sjá innihaldið.
Fjarverustillingin gerir þér kleift að tæma ísskápinn þegar þú ferð í frí. Þegar stillingin er sett á er hitastigið á frystihólfunum fest í -18°C; slökkt er á kæliskápnum og slökkt er á skjánum sem segir til um hitastigið.
Stjórnborðið er einfalt í notkun, svo sem til að sjá eða breyta hitastigi og fleira.