Skandinavísk hönnun með hreinum línum og því passar skápurinn auðveldlega með húsgögnum í öðrum stíl.
Hurðirnar eru með innbyggðum ljúflokum og lokast því hljóðlega og mjúklega.
Sökkullinn gefur HAVSTA sígilt, tímalaust og snyrtilegt útlit.
Glerhurðir verja uppáhaldshlutina þína fyrir ryki en þó getur þú haft þá sýnilega.
Gegnheil fura er tímalaust efni með náttúrulegum tilbrigðum sem gefur hverju húsgagni einstakt útlit.