Borðfæturnir færast með þegar þú dregur borðið út og skapa þannig meira pláss fyrir stóla við borðið.
Hvert borð er einstakt, með mismunandi viðarmynstri og náttúrlegum litbrigðum sem eru hluti af þokka viðarins.
Borð fyrir tvo sem auðvelt er að stækka upp í borð fyrir fjóra með aukaplötunni sem fylgir.
Aukaplatan er geymd undir borðplötunni og það er jafn auðvelt að setja hana upp og setja hana aftur niður þegar gestirnir eru farnir.
Stöðugt borð með sterkum viðarfótum og viðarspóni, bæsað og lakkað í nokkrum lögum svo það fær síður á sig rispur og bletti.
Borð fyrir 2-4 með burstuðum, möttum eikarspóni og rúnnuðum hornum.
Passar vel við TONSTAD stóla. GRÖNSTA og TOSSBERG stólar passa líka við borðið, til í nokkrum litum.
Húsgögnin í TONSTAD línunni eru hönnuð á þann hátt að þau passi vel saman. Hafðu eitt stakt eða fleiri saman.