SANDLÖPARE
Teygjulak,
90x200 cm, ljósbrúnt/blettatígursmynstur
Staðsetning í verslun Barna IKEA

1.790,-

1790

Magn: - +
SANDLÖPARE
SANDLÖPARE

SANDLÖPARE

1.790,-
Vefverslun: Til á lager
Blettatígurinn býr á gresjunni og er með fallegan blettóttan feld sem fellur að landslaginu. Þetta teygjulak passar fullkomlega með SANDLÖPARE sængurverasettunum þar sem það er blettatígur á þeim öllum.

Form/Hönnunarferli

Samstarf við Nordens Ark

IKEA er í samstarfi við Nordens Ark, sjálfseignarstofnun sem einbeitir sér að náttúruvernd, ræktun og frelsun dýra, rannsóknir og fræðslu. Samstarfið hefur fært okkur dýpri innsýn í þær verndunaraðgerðir sem þarf til að varðveita dýralíf. Við styðjum við Nordens Ark með því að fræða bæði börn og fullorðna um dýr í útrýmingarhættu. Með dýrmætri þekkingu þeirra höldum við áfram að þróa nýjar vörur sem vekja upp forvitni um jörðina, náttúruna og öll þau undursamlegu dýr sem hér búa.

Hugleiðingar hönnuða

Hönnuður: Anna Lagerström

„Með SANDLÖPARE vörulínunni vildi ég skapa spennandi og litríkan heim þar sem börn geta notað ímyndunaraflið sitt og orkuna til að semja sögur og búa til leiki. Ýmis smáatriði eru vandlega falin í vörunum og það er alltaf eitthvað nýtt til að uppgötva og leika sér með. Börn eru ekki aðeins áhorfendur – þau eru könnuðir og hetjur í ævintýraleit.“

Efni

Mjúk bómull og glansandi viskósi

Sængurver úr bómullar- og viskósablöndu færa þér fullkomið sambland af þægindum og góðri endingu. Bómullin er náttúrulegt trefjaefni og andar vel, er rakadræg og mjúk en viskósi er silkimjúkt efni (unnið úr viðarmassa) sem þornar hratt og er með örlitlum glans. Sængurverið er endingargott, einfalt í umhirðu og hjálpar þér að halda jöfnum líkamshita. Gert fyrir fagra drauma.


Aðrir keyptu líka

Svipaðar vörur

Fleiri vörur úr sömu vörulínu

Vörur sem þú skoðaðir síðast