11.990,-
5.990,-
Hugleiðingar hönnuða
Akanksha Deo, hönnuður
Við erum öll stödd í einhvers konar einmanaleikafarsótt þar sem æ fleiri lifa í einangrun. Þess vegna heillaðist ég af hugmyndinni um að skapa hluti sem gætu fyllt heimilið af skemmtilegu og vingjarnlegu andrúmslofti. Þessir þrír hlutir eru í raun fjölskylda af abstrakthlutum sem fylgjast með þér og eru með þér svo þú finnir ekki fyrir einmanaleika. Hver og einn hlutur hefur sinn persónuleika og passar kannski ekki inn en þeir eiga samt allir vel saman. Ég vona að þér líki þá það mikið að þú takir þá með þér heim.