Form/Hönnunarferli
Endurunnin hönnun
Það er ekki alltaf vitleysa að líta til fortíðar. Þegar við hófum hönnunarferlið á nýja NYMÅNE loftljósinu var markmiðið að hanna nútímalegt en jafnframt tímalaust ljós með innbyggðri glýjulausri LED lýsingu. Þegar við kíktum í fjarsjóðskistuna með öllum gömlu ljósunum rákum við augun í loftljós frá seinni hluta sjöunda áratugarins. Þetta ljós hét KLANG og það hafði alla eiginleikana sem við leituðum eftir – og hönnuðurinn setti það í form sem passar fullkomlega með NYMÅNE ljósalínunni.