Saga
Vissir þú að það eru ákveðin vísindi á bak við það hvernig vínglös líta út? Sem betur fer þarft þú ekki að sökkva þér ofan í þau til að fá rétta glasið fyrir uppáhaldsvínið þitt. Við hönnuðum STORSINT glervörurnar til að þú gætir fengið ákjósanleg glös fyrir mismunandi drykki. En fyrst þurftum við að skilja hvað gerist þegar víni er hellt í glas í ákveðnu formi – og til þess fengum við aðstoð frá vínsérfræðingum.
Vöruhönnuðurinn Malin Ljungström deilir með okkur nokkrum staðreyndum:
„Það á til dæmis að framreiða yngri vín í minni glösum með aðeins þrengri toppi. Það er svo að vínið verði ekki fyrir of miklum áhrifum af súrefninu í loftinu“, útskýrir Malin. „En eldri og fyllri vín þurfa stærri og rúnnaðri glös með rúmum toppi til að hleypa sem mestu súrefni að víninu svo það geti ýtt undir lykt og bragð vínsins.“
Hvernig þú upplifir að drekka vínið er einnig um jafnvægi á milli belgsins, standsins og fótarins.
„Gott vínglas þarf að fara vel í hendi og vera fallegt,“ segir Malin.
Ný sýn á vín
Samvinnan með vínsérfræðingum þýddi að sumar hugmyndir Malin um vín breyttust. Til dæmis það að kampavín og önnur freyðivín eigi alltaf að drekka úr háu kampavínsglasi svo það sé nóg pláss fyrir búbblurnar. „Það á við um yngri vín, en við lærðum að eldri kampavín eru ilmríkari og því er gott að bera þau fram í víðara glasi svo þau njóti sín betur,“ segir Malin og bætir við: „Það er alltaf eitthvað nýtt að læra í vínheiminum.“