Fjölhátalarakerfið gerir þér kleift að tengja hátalarann við aðra Bluetooth-hátalara sem eru með þessa virkni. Þá getur þú hlustað á sömu tónlist í fleiri en einum hátalara í einu!
Gerir þér kleift að hlusta á uppáhaldstónlistina eða -hlaðvarpið, hvar sem er. Þú þarft bara símann þinn, tölvu eða annað tæki með Bluetooth-tengingu.
Að hlusta á tónlist, með öðrum eða í einrúmi, er skemmtilegt og hvetur til leiks og hreyfingar. Herbergið verður að leikvelli og hver dagur að ævintýri.
Hátalarinn er auðveldur í notkun og gefur góðan hljóm – sem verður enn betri ef þú bætir við fleiri Bluetooth-hátölurum með fjölhátalarastillingu.
Færanlegur hátalari gerir hvern dag að ævintýri – lítill og sætur tónelskur vinur sem fylgir taktinum hvert sem þú ferð og dreifir gleði og góðum tónum.
Með GREJSIMOJS viljum við hvetja til meiri leiks og samveru. Vörurnar kalla fram leikgleði hjá fólki á öllum aldri og um allt heimilið.