Saga
Blómamynstur eru sígild í innanhússhönnun. Að þessu sinni vildum við þó nálgast þetta tímalausa þema á nýjan hátt. Með stíl grafíska hönnuðarins Stinu Persson fannst okkur við vera á réttri leið. Útkoman er falleg vörulína þar sem abstrakt blóm og mjúkar, flæðandi línur eru rauður þráður í gardínum, púðum og rúmfatnaði.
„Stina vinnur með vatnsliti á leikandi og grafískan hátt sem gefur ferskan og spennandi blæ,“ segir Karin Dahlström, hönnunarstjóri vefnaðarvara.
„Við gáfum henni ákveðnar leiðbeiningar – eins og um litasamsetningu og hvaða vörur ættu að vera með. Vörulínan þurfti að vera í stíl, henta allan ársins hring og auðvelt að para saman við aðrar vörur fyrir stofu og svefnherbergi.“
Frá pensilstrokum yfir í vefnaðarmynstur
Það krafðist náinnar samvinnu innan vefnaðarvöruteymisins að umbreyta vatnslitaverkum Stinu í fallegt vefnaðarmynstur og vörur fyrir heimilið.
„Þetta snerist um að finna rétta stærðarhlutfallið fyrir myndefnið svo það passaði til dæmis á púða og finna út endurtekninguna – það er að segja hvernig mynstrið ætti að flæða óslitið yfir efnið.“
Annar mikilvægur þáttur var að fínpússa litina til að tryggja að þeir kæmu út nákvæmlega eins og til stóð. „Þessi vinna, jafnvel stafrænu hlutar hennar, er eins konar handverk. Það þarf bæði nákvæmni og mikla reynslu til að ná þessu réttu,“ útskýrir Karin.
Tjáningarmáttur glugga
Stærri og djarfari mynstur enda oft á púðum og skrautvörum – en hér völdum við að hafa sum þeirra á SKOGSNÄSSLA og PELARKÖRSBÄR gardínum.
„Þegar við sáum glæsileg málverk Stinu vildum við endilega að þau fengju að njóta sín,“ segir Karin, sem fékk nýjan áhuga á vatnslitum við vinnuna á vörulínunni.
„Ímyndaðu þér bara að einn litur geti skapað svo marga mismunandi tóna einfaldlega með því hvernig hann er blandaður. Vatnslitun er svo tjáningarrík og getur virkilega bætt einhverju einstöku við heimilið.“