11.950,-
9.950,-
Nýtt lægra verð
Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
EKEDALEN
Viður er það efni sem fólk tengir oftast við IKEA húsgögn og það er ekki að ástæðulausu. Hann er endurnýjanlegur, endurvinnanlegur, endingargóður, eldist fallega og er mikilvægur hluti af skandinavískri hönnunarsögu. Við hjá IKEA trúum því að viður, sem er ræktaður og felldur á ábyrgan hátt, geti haft lykiláhrif í því að draga úr loftslagsáhrifum. Árið 2012 settum við okkur það markmið að árið 2020 yrði allur viður sem við notum af sjálfbærari uppruna. Það gleður okkur að tilkynna að við höfum náð þessu markmiði og í dag er meira en 98% af öllum við sem notaður er í IKEA vörur annað hvort FSC-vottaður eða endurunninn.
Skógar stuðla að því að viðhalda jafnvægi í andrúmsloftinu, hreinsa loftið sem við öndum að okkur og eru hluti af hringrás vatns. Þeir næra líffræðilegan fjölbreytileika dýralífsins og skapa heimili fyrir frumbyggjasamfélög sem byggja lífsviðurværi sitt á skóginum. 90% plöntu- og dýrategunda sem lifa á jörðinni þurfa á skógum að halda til að lifa af. Þeir eru uppspretta matar, eldsneytis, timburs og fjölda vistkerfa sem við treystum á. IKEA aflar sér um það bil 19 milljóna m³ af bolvið á ári frá um 50 löndum og hefur því veruleg áhrif á skóglendi víða um heim ásamt timburiðnaðinum í heild sinni og ber þar með mikla ábyrgð á því að viður sé almennt unninn á ábyrgan hátt. Ábyrgt skógarhögg og skógrækt tryggir að þörfum þeirra sem eru háð skóglendinu sé mætt, að fyrirtæki geti unnið á sjálfbæran hátt, að vistkerfi skóglendisins sé verndað og líffræðilegur fjölbreytileiki efldur.
Hjá IKEA vinnum við eftir ströngum stöðlum til að stuðla að ábyrgri skógrækt. Í aðfangakeðju okkar leyfum við engan við sem er frá skóglendi þar sem trén eru felld ólöglega, hefur mikið varðveislugildi eða er á svæðum sem tengjast samfélagslegum átökum. Áður en birgjar byrja að vinna með IKEA verða þeir að sýna fram á að þeir uppfylli strangar kröfur IKEA um skógrækt. IKEA krefst þess að allir þeirra birgjar notist við annaðhvort FSC-vottaðan eða endurunninn við. Gerð er úttekt reglulega á öllum birgjum og þeir sem ekki uppfylla kröfur þurfa að fara í aðgerðir til úrbóta strax. Við erum stolt af því að tilkynna að við höfum, í samstarfi við birgjana okkar, náð markmiðum okkar um sjálfbærari uppruna sem við settum okkur að ná fyrir árið 2020. Í dag er meira en 98% af öllum við sem notaður er í IKEA vörur annað hvort FSC-vottaður eða endurunninn.
Þar sem ágangur á skóglendi heims og vistkerfi þeirra eykst í sífellu vegna ósjálfbærs landbúnaðar, stækkunar innviða og ólöglegs skógarhöggs er nauðsynlegt að grípa til enn heildrænni nálgunar til að vernda og styðja þessar mikilvægu auðlindir fyrir komandi kynslóðir. Áætlun IKEA í átt að betri skógrækt fyrir árið 2030 miðar að því að bæta skógrækt, auka líffræðilegan fjölbreytileika, draga úr loftslagsbreytingum og styðja við réttindi og þarfir þeirra sem búa og lifa í skóginum í gegnum alla aðfangakeðjuna og knýja fram nýsköpun til að nota við á enn betri hátt. Áætlunin byggir á þremur lykilatriðum: • Að gera ábyrga skógrækt að venju um allan heim. • Að stöðva skógareyðingu og endurnýta skóglendi. • Að stuðla að nýsköpun þar sem viður er nýttur á snjallari hátt með því að hanna allar vörur þannig að það sé hægt að endurnýta, endurnýja, endurframleiða og að lokum endurvinna þær.
IKEA hefur unnið með fyrirtækjum, stjórnvöldum, samfélagshópum og frjálsum félagasamtökum í að vinna gegn niðurbroti skóglendis og skógareyðingu og að auka magn og framboð á viði frá ábyrgri skógrækt, bæði í aðfangakeðju okkar og víðar í mörg ár. Við vinnum í því að bæta skógrækt á heimsvísu og gera ábyrga nýtingu skóga algilda innan iðnaðarins, stuðla að uppbyggingu og endingu skóglendis ásamt því að bæta líffræðilegan fjölbreytileika þeirra.
„Fyrir mér er hjarta heimilisins þar sem fólk borðar. Með EKEDALEN línunni vildi ég gera borðstofusett sem væri jafnt fyrir stór matarboð og heimalærdóm eða föndur. Það er auðvelt að stækka borðið og þar sem fæturnir fylgja borðinu þegar það er stækkað eru þeir ekki fyrir stólunum. Stólarnir eru þægilegir og þú getur þvegið áklæðið af þeim í þvottavél. Fjölbreytt og gagnlegt fyrir nútímaleg heimili.“
Svampur hentar vel í sethúsgögn og dýnur þar sem hann veitir góð þægindi og getur dregið úr álagi með því að laga sig að líkamanum Þú getur valið úr nokkrum mismunandi svömpum, til dæmis mjög eftirgefanlegum svampi og minnissvampi, eftir því hvaða eiginleikum þú ert að leita eftir. Áður fyrr var hráefnið í svampinn eingöngu úr nýrri jarðolíu. En nú höfum við ásamt byrgjum okkar byrjað að þróa efni sem er endurnýjanlegt og endurvinnanlegt.
Stólarnir er sennilega mest notuðu húsgögnin. Þeir þurfa að þola klístruga barnafingur, sem og snögga morgunverði eða langa setu yfir kvöldmatnum. Þess vegna getur verið góður kostur að vera með stóla með áklæðum sem þú getur tekið af og þvegið, alveg frá byrjun. Þá þarftu ekki að kaupa nýja stóla eða bólstra þá gömlu aftur ef slys ber að höndum. Þú tekur bara áklæðið af, þværð það og stóllinn verður sem nýr. Góð hugmynd, er það ekki?
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
Auðvelt að halda áklæðinu hreinu þar sem hægt er að taka það af og þvo í vél.
Það er þægilegra að sitja lengi á þessum stólum, sem eru með bólstrað sæti og bogadregið bak.
Gegnheill viðurinn gerir stólinn endingargóðan og stöðugan.
Fer vel með borðum og bekkjum úr sömu vörulínu.
Vörunúmer 603.410.15
1 pakkning(ar) alls
Stóllinn hefur verið prófaður fyrir notkun á heimilum og uppfyllir kröfur um endingu og öryggi samkvæmt eftirfarandi stöðlum: EN 12520 og EN 1022.
Áklæðið hefur farið í gegnum nuddpróf og þolir allt að 20.000 umferðir. Áklæði sem þolir meira en 15.000 umferðir hentar húsgögnum sem þurfa að standast hversdagslega notkun á heimilum.
Áklæðið er með ljósfestu á stigi 5 (sem segir til um það hversu vel það stenst upplitun) á skalanum frá 1 upp í 8. Samkvæmt stöðlum henta áklæði með ljósfestu á stigi 4 og upp úr til notkunar á heimilum.
Það þarf skrúfjárn til að setja stólinn samann, selt sér í FIXA verkfæri, 17 í setti.
Notaðu FIXA filttappa til að koma í veg fyrir rispur og draga úr hljóðum þegar stólar eru dregnir til, seldir sér.
Hægt að taka í sundur fyrir endurvinnslu eða orkunýtingu ef það er mögulegt á þínu svæði.
Hægt er að bæta við EKEDALEN áklæði á stól.
Lengd: | 96 cm |
Breidd: | 45 cm |
Hæð: | 16 cm |
Heildarþyngd: | 6,33 kg |
Nettóþyngd: | 5,69 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 66,7 l |
Aðeins nýjasta útgáfa skjalanna er í boði fyrir niðurhal. Það þýðir að það gæti verið eitthvað öðruvísi í skjalinu sem þú hleður niður og útgáfunni sem fygldi vörunni.
Vörunúmer 603.410.15
Vörunúmer | 603.410.15 |
Vörunúmer 603.410.15
Hámarksþyngd: | 110 kg |
Breidd: | 45 cm |
Dýpt: | 51 cm |
Hæð: | 95 cm |
Breidd sætis: | 45 cm |
Dýpt sætis: | 39 cm |
Hæð sætis: | 48 cm |
Vörunúmer: | 603.410.15 |
Pakkningar: | 1 |
Lengd: | 96 cm |
Breidd: | 45 cm |
Hæð: | 16 cm |
Heildarþyngd: | 6,33 kg |
Nettóþyngd: | 5,69 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 66,7 l |
Finndu vöruna í versluninni
1 pakkning(ar) alls