Úr plasti sem er að minnsta kosti 50% endurunnið.
Færanleg uppþvottagrind með handfangi sem auðveldar þér að láta leirtauið þorna fyrir frágang.
Sniðug hirsla fyrir leirtau á stúdentagörðum með sameiginlegu eldhúsi – eða þegar þú ert í útilegu og þarft að bera uppvaskið að uppþvottaaðstöðu.
Botninn er með upphækkuðum raufum sem bæta loftflæði og koma í veg fyrir að leirtauið standi í vatni á meðan það þornar.
Pláss fyrir diska, hnífapör og glös – hentar vel fyrir uppvask dagsins fyrir einn til tvo einstaklinga.
Einnig hægt að nota sem alhliða hirslu fyrir smáhluti sem þú vilt hafa á ákveðnum stað.
Paraðu við aðrar vörur úr SPJUTLILJA línunni til að fá allt sem þú þarft fyrir fyrsta heimilið – allt frá skálum og diskum yfir í krukkur, diskaþurrkur og kryddkvörn.