Hægt er að nota rúmtjöldin hvernig sem rúmið snýr og hvar sem stiginn er staðsettur.
Þú þarft ekki að bora eða hætta á að fá varanleg för eftir lím á rúmið þar sem rúmtjöldin eru með frönskum rennilás sem þú festir á málmsnaga sem hengdir eru á rúmbríkina.
Þegar það er tími til að taka til eða hætta að leika er auðvelt að draga tjöldin til hliðanna með því að færa málmsnagana.
Myndskreytingarnar ýta undir ímyndunaraflið og passa vel við leikfangamatinn, leikfangaeldhúsáhöldin og leikfangabúðarkassann.
Hver og einn bás er með opi, svo börnin geta leikið báðum megin við og skipst á að vera sölumanneskjan og viðskiptavinurinn.
Að fara í búðarleik og líkja eftir fullorðnum í hlutverkaleik er leið fyrir börn til að vinna úr upplifunum, æfa sig í samskiptum og skilja umhverfi sitt.
Rúmtjaldið er úr 100% pólýester – léttu og endingargóðu efni sem þolir vel annasaman dag á markaðinum.