IKEA vinnur með félagslegum frumkvöðlum – saman í átt að betra samfélagi
Frá árinu 2012 hefur IKEA verið í samstarfi við fyrirtæki um allan heim sem stuðla að atvinnutækifærum fyrir minnihlutahópa og takast á við ýmsar áskoranir sem varða umhverfismál og samfélög. Þessi fyrirtæki eru oft kölluð félagslegir frumkvöðlar eða félagsleg fyrirtæki.
Abeer Almnajed, saumakona, Jordan River Foundation.
Gagnlegt samstarf
Við aukum möguleika og áhrif félagslegu fyrirtækjanna með þróunaráætlunum, fjárfestingum og þekkingarmiðlun. Frá þeim fáum við svo einstakar vörur og þjónustu sem við seljum viðskiptavinum okkar.
Hönnunarvinnustofa með handverksfólki í Jordan River Foundation.
Ráðist að rót vandans í sameiningu
Með samstarfi við félagsleg fyrirtæki getum við sameinað styrkleika okkar með það fyrir augum að stuðla að sjálfbærari framtíð og uppræta fátækt, útilokun og ójöfnuð.„Þegar jaðarsettar konur öðlast valdeflingu, þjálfun og atvinnu vaknar eitthvað afl innra með þeim, hjá fjölskyldu þeirra og samfélagi – sem leiðir til stærri breytinga.“
Sumita Ghose
Stofnandi fyrirtækisins Rangsutra
Saman í rétta átt
Í samstarfi við félagsleg fyrirtæki víðs vegar um heim hönnum við og framleiðum vörur, ýmist handgerðar eða í verksmiðjum. Einnig kaupum við hráefni frá smærri ræktendum.
Púðaver sem skapa atvinnu
SILOMAL og VEDMAL púðaverin eru framleidd í Rangsutra, félagslegu fyrirtæki þar sem meirihluti handverksfólksins eru einnig hluthafar, en í heildina starfa þar næstum 2.000 einstaklingar.Við höldum áfram að stækka
Árið 2021 hófum við samstarf við fjögur ný félagsleg fyrirtæki og viðskiptavinum IKEA bjóðast nú sífellt fleiri handverksvörur frá fyrirtækjum af þessu tagi. Við viljum byggja upp langtímasamstarf sem getur skapað störf og lífsviðurværi fyrir sem flesta til lengri tíma.Samstarf sem öll græða á
Þegar við vinnum með félagslegum fyrirtækjum verða þau hluti af birgðakeðju IKEA og fá þannig verðmæt tækifæri. Til dæmis eru IKEA hönnuðir, vöruhönnuðir og fagfólk með kunnáttu um almenna hönnun og tilheyrandi kröfur en félagslegu fyrirtækin hafa þekkingu á hráefninu og handverki hvers staðar fyrir sig.Með slíku samstarfi fá fyrirtækin aðgang að stærri markaði og geta þannig vaxið, öðlast meira sjálfstæði og veitt fleirum atvinnutækifæri. IKEA fær einstakar handverksvörur og þjónustu fyrir viðskiptavini sína ásamt fjölbreyttari mannflóru í birgðakeðjuna.