17. desember er síðasti dagurinn til að panta sendingar þannig að vörurnar berist örugglega fyrir jól. Sendingar sem pantaðar eru eftir 17. desember verða afgreiddar eins fljótt og hægt er en við getum ekki tryggt að þær berist fyrir jólin.

Sendingarþjónusta

Með sendingarþjónustu IKEA geturðu valið þá afhendingarleið sem hentar þér og pöntuninni þinni. Við bjóðum upp á mismunandi valkosti eftir stærð, þyngd og eðli sendinga. Kynntu þér helstu sendingarleiðir hér að neðan.

Dropp | Pósturinn | Samskip | IKEA Höfuðborgarsvæðið

sendingarþjónusta

Við bjóðum upp á sendingar með Dropp fyrir vefverslun

Skoðaðu afhendingarstaði Dropp

Verðskrá IKEA fyrir Dropp sendingar

Dropp staðir Þyngd Verð
Allir afhendingarstaðir
0-10kg 990,-
10-30kg 1.890,-
Heimsendingar 18-22
Höfuðborgarsvæðið og Suðvesturhornið allt að 150kg verð frá 1.590,-
Heimsendingar 10-16
Höfuðborgarsvæðið allt að 150kg verð frá 1.590,-

Verð miðast við þyngd eða rúmmálsþyngd, hvort sem hærra er

Lengsta hlið pakkningar má ekki vera lengri en 180 cm.

Check out Dropp's delivery locations

Nú býður IKEA upp á sendingarþjónustu frá Póstinum

Skoðaðu verðskrá Póstins hér
Pósturinn býður upp á ýmsar leiðir, t.d. fyrir pantanir upp að 20 kg sem passa í póstbox sem eru staðsett um allt land og eru flest opin allan sólarhringinn. Einnig bjóðum við upp á sendingar heim og á næsta pósthús víðs vegar um land. Sendingakostnaður tekur mið af gjaldskrá Póstsins. Skoðaðu verðskrá Póstins hér

Samskip

Sendingarkostnaður utan höfuðborgasvæðisins er samkvæmt gjaldskrá á www.samskip.is. Ef sendingarkostnaður fer yfir 32.900 krónur festum við hann í þeirri upphæð, fyrir sendingar allt að 500 kg. Eftir það tekur almenn gjaldskrá Samskipa við.

Sendingar eru fluttar í vöruhús flutningsaðila. Athugið að hafa þarf samband við Samskip ef óskað er eftir að fá vörurnar sendar heim að dyrum. Í þeim tilvikum þarf að greiða aukagjald hjá Samskip samkvæmt verðskrá. Við hjá IKEA kappkostum að afgreiða vöruna eins fljótt og hægt er úr húsi.

Upplýsingar um dreifingu sendinga utan höfuðborgasvæðisins

Flestar sendingar út á landsbyggðina eru afhentar í vöruhús flutningsaðila. Vilji viðskiptavinur fá sendinguna heim að dyrum þarf að hafa samband við Samskip og greiða aukagjald samkvæmt verðskrá.

Á þeim svæðum þar sem flutningsaðili býður ekki upp á vöruhús eða afhendingastöð, eru sendingar sendar heim að dyrum. Þetta hefur áhrif á sendingargjaldið sem IKEA innheimtir með pöntun.

 

Rekja og finna sendingu

Hér getur þú flett upp sendingarnúmeri til að sjá hvar pöntunin þín er stödd
 

Rekja sendingu

IKEA Höfuðborgarsvæðið

Fast verð fyrir sendingar undir 900 kg er 9500 krónur. Ef sendingin er 900 kg eða þyngri þá er greitt samkvæmt gjaldskrá IKEA.

Heimsendingarþjónustan felur í sér akstur frá IKEA að heimili viðskiptavinar þar sem bílstjóri kemur vörunum út fyrir lyftu á bíl. Til að tryggja hagkvæmni heimsendinga þarf móttakandi að vera heima á þeim tíma sem vörurnar berast. Ef viðkomandi er ekki heima verða vörur sendar aftur til IKEA.  Athugið að bílstjóri sér eingöngu um akstur. Hvers konar tjón eða skemmdir sem verða á vörunum eftir að þær eru komnar úr bílnum eru á ábyrgð viðtakanda. Ekki er sendingarþjónusta á samsettum vörum.

Ef þörf er á aðstoð við að bera vörurnar inn á heimilið bendum við á sendibílaþjónustur, þar er greitt eftir gjaldskrá.

 

Viðskiptavinir geta valið að fá vörurnar sendar heim annað hvort frá 9-12, 13-16 eða 16-20 virka daga og um helgar frá 10-13 eða 13-17. Ekki er hægt að gefa upp nákvæmari tímasetningu.

 

Til að tryggja hagkvæmni heimsendinga þarf móttakandi að vera á staðnum á þeim tíma sem vörurnar berast. Sé viðkomandi ekki á staðnum verða vörurnar sendar aftur til IKEA og getur viðskiptavinur nálgast þær þar eða hringt í þjónustuver og greitt aftur fyrir heimsendingu á nýjum tíma.

  

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X