Teygjulakið passar á allt að 36 cm þykkar dýnur.
Lakið nær yfir hornin á dýnunni og teygjan heldur því á sínum stað. Það verður því ekki allt krumpað undir þér á morgnana og því verður auðveldara að búa um.
Teygjulakið er endingargott og auðvelt í umhirðu, þú þarft aðeins að þvo það á 60°C. Þú þarft ekki að strauja lakið þar sem það verður slétt og fínt um leið og þú teygir það yfir dýnuna.
Efnið er úr 100% hör sem andar og leiðir hita vel. Það þýðir að það heldur á þér hita á veturna og svala í heitu veðri sem gerir þér kleift að sofa vel og ná góðri hvíld.
Forþvegið gæðaefni sem er mjúkt og notalegt að sofa í og færir svefnherberginu afslappað yfirbragð. Það hleypur ekki né aflagast og upplitast ekki.
Rúmfatnaðinum er pakkað í endurnýtanlegan poka, sem má þvo, úr sama efni og í sama lit og innihaldið.