Hægt er að setja heitan púðann á háls, öxl eða á maga til að draga úr verkjum og hjálpa þér að slaka á.
Tvær mínútur í örbylgjuofni eða ofni gefa af sér raka og hita sem endist í 20-30 mínútur.
Það er einnig hægt að setja púðann í frysti til að kæla niður bólgur eftir átök eða tognun.
Náttúruleg fylling úr þurrkuðum kirsuberjasteinum.
Það er auðvelt að taka púðaverið af til að þvo og halda hreinu.