BETTORP LED borðlampi með þráðlausri hleðslu veitir þér notalega birtu þar sem þú þarft á að halda og á plötunni eru tveir krossar fyrir þráðlausa hleðslu.
Þú getur auðveldlega hlaðið lampann og öll Qi-vottuð snjalltæki á hleðsluplötunni.
Hólf fyrir hluti eins og skartgripi og úr á hleðsluplötunni hjálpar þér að halda utan um eigur þínar.
Þú getur stillt lýsinguna í þremur skrefum – sterk, miðlungs og mild.
LED ljósapera notar allt að 85% minna af orku og endist um 20 sinnum lengur en hefðbundin glópera.
Einkennandi nútímaleg hönnunin gerir BETTORP LED borðlampann með þráðlausri hleðslu að augnayndi á hverju heimili.
Minnst 20% af ABS-plastinu í vörunni er endurunnið.
Þú getur fært BETTORP lampann þangað sem þú þarft á ljósi að halda – hann hentar vel á náttborðinu, sófaborðinu og í gluggakistunni. Mundu bara að setja í hann rafhlöður.