Legubekkinn er hægt að nota frístandandi eða bæta við sófana.
Það er auðvelt að halda áklæðinu hreinu þar sem þú getur þvegið það í þvottavél og það er lítið mál að fjarlægja það og setja aftur á.
10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is
Áklæðið er úr Kelinge sem er mjúkt pólýesterefni. Flauelsefnið er með breiðum rifflum, þægilegt og mjúkt viðkomu og með örlitlum gljáa sem gefur því fallegan og notalegan blæ.
Komdu þér vel fyrir á KIVIK legubekk með djúpri sessu með pokagormum, eftirgefanlegum svampi og pólýestertrefjum sem færa þér stuðning og mýkt.
Þú getur raðar saman nokkrum legubekkjum til að skapa hið fullkomna horn – en það má gera ráð fyrir að þú sofnir yfir myndinni.
KIVIK sófinn er með einstakan og stílhreinan stíl og býður upp á mismunandi valmöguleika til að tryggja að hann passi með öðru á heimilinu.
Pokagormar eru endingargóðir og gera það að verkum að legubekkurinn heldur bæði lögun sinni og þægindum í mörg ár.