Það er auðvelt að halda áklæðinu hreinu þar sem hægt er að taka það af og þvo í vél.
Áklæðið er úr Gunnared-efni sem er dope-litað pólýesterefni. Endingargott hlýlegt efni sem minnir á ull með áþreifanlegri blandaðri tvítóna áferð.
10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Fæturnir lyfta sófanum upp af gólfinu, gera hann léttari og auðvelda þrif.
Pokagormakjarni veitir jöfn þægindi um alla sessuna og veitir líkamanum góðan stuðning.
Pokagormar eru endingargóðir og gera það að verkum að sófinn heldur bæði lögun sinni og þægindum í mörg ár.
Hæð og dýpt sætisins ásamt bakpúðunum sem veita þér góðan stuðning gera þér kleift að sitja betur í sófanum.
Tímalaus hönnun með fallegum smáatriðum eins og bryddingu umhverfis armana og viðarfótum.