10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Þú getur stillt hallann og læst honum til að laga stólinn að mismunandi líkamsstöðu á meðan þú situr.
Hjólin eru með bremsubúnaði sem heldur stólnum á sínum stað þegar þú stendur upp og losar um hann þegar þú sest niður.
Þéttur hágæðasvampur veitir þér þægindi um ókomin ár.
Hægt er að stilla hæðina á borðinu eins og þér hentar því fæturnir eru stillanlegir frá 65 í 85 cm.
Djúp borðplata veitir þér rúmt vinnurými og gefur þér færi á að sitja í þægilegri fjarðlægð frá tölvuskjánum.
Stuðningur við mjóhrygginn dregur úr álagi.
Samverkandi sætis- og bakhalli fylgir hreyfingum líkamans og aðlagar stólinn í rétta stöðu.
Hönnun baksins veitir líkamanum, hálsinum og höfðinu góðan stuðning.
Stólgrindin er úr sterkbyggðu kolstáli og krossvið og því mun hann endast þér lengi.
Netefnið í bakinu hleypir lofti í gegnum sig, sem er einstaklega gott þegar leikurinn dregst á langinn.
Þú getur auðveldlega snúið höfuðpúðanum og stillt hæðina svo þú fáir góðan stuðning við hálsinn þegar þú spilar – og þegar þú slakar á milli leikja.
Armarnir fylgja hreyfingum þínum og hægt er að stilla hæð þeirra sem dregur úr álagi á hendur og axlir.
Endingargott áklæðið líkist leðri og auðvelt er að þurrka af því.
Hjólin eru gúmmíklædd og renna því mjúklega á hvaða gólfi sem er.