Stílhreinu NICKEBO framhliðarnar skapa nútímalegt og fallegt eldhús. Liturinn er líflegur en þó nógu hlutlaus til að hægt sé að færa honum meiri persónuleika með úrvali af borðplötum, höldum, hnúðum og öðrum smáhlutum.
Þín uppskrift að eldhúsi
Fullnýttu hvern krók og kima. Sveigjanlega METOD eldhúslínan býður upp á skápa í ólíkum stærðum sem auðvelda þér að laga eldhúsið að rýminu. Þú getur bætt við grágrænum hliðarklæðningum, sökklum og skrautlistum í stíl við NICKEBO framhliðarnar.
Skoðaðu teikniforrit fyrir eldhúsFallegt heildarútlit með innbyggðum heimilistækjum
Þegar heimilistækin eru innbyggð með sömu framhlið og aðrir skápar í eldhúsinu skapar þú snyrtilegt og róandi yfirbragð. Það kemur sér einstaklega vel í opnu rými þar sem eldhús og stofa eru samtengd.;
Bókaðu ráðgjöf í eldhúsinnréttingadeild
Ókeypis 25 ára ábyrgð
Við erum svo sannfærð um gæðin að við bjóðum upp á 25 ára ábyrgð á METOD eldhúsum.