Skoðaðu þig um á nútímalegu baðherbergi með hlýlegri og fágaðri brúnni eikaráferð, hannað til að styðja við virkan lífsstíl. Svipaðir litatónar og ólík hráefni skapa glæsilegt útlit.
Flottur stíll þarf ekki að vera óhentugur
Til að koma líflegum lífsstíl fyrir á litlu baðherbergi þarf að finna sniðugar leiðir til að nýta hvern krók og kima. Snagar og veggspegill auðvelda þér að koma þér úr vinnugírnum yfir í ræktina eða gleðskapinn. Óhreinatauspoki á hjólum er aldrei fyrir þér og þú getur geymt snyrtivörurnar á snyrtilegan hátt í veggskápnum.
Nútímalegt baðherbergi með dökkum viðartónum sem hentar þínum smekk og lífsstíl
Ríkir jarðlitir færa baðherberginu náttúrulegt yfirbragð með brúnni eikaráferð. Þessi lausn er hönnuð til að passa í lítil rými með nokkrum skápum sem má setja upp á ólíkan hátt eftir persónulegum þörfum og stíl.