Útisvæði í skandinavískum stíl sem snýst um að njóta sumarsins
Fáðu sem mest úr sumrinu og njóttu þess að sitja úti í þægindum með sígildum útihúsgögnum sem eru bæði endingargóð og á hagstæðu verði. Drífðu þig út og njóttu blíðunnar.
Færðu útisvæðinu yfirhalningu
Veturinn kveður og sumrið kallar! Nú er rétti tíminn til að sækja útihúsgögnin úr geymslunni og dusta af þeim rykið. Umbreyttu veröndinni í fallegan og hentugan stað þar sem þú getur slakað á, eldað, borðað og leikið.
Vertu sólarmegin í lífinu
Taktu vel á móti sumrinu og gerðu útisvæðið notalegt, þægilegt og skemmtilegt. Borð og stólar með örmum úr endingargóðum akasíuvið henta flestum tilefnum og falleg sólhlíf ver þig fyrir sólargeislum og vindi. Rúmgóðir skápar geyma allt sem þarf til að skapa, allt frá pönnum að vaxlitum.
Góðar stundir á silfurfati
Sólin skín og hungrið segir til sín. Fírum upp í grillinu! Maturinn bragðast best undir berum himni og notalegir stólar með örmum og endingargott borð bæta um betur. Gott veður, góður matur, góður félagsskapur – hvað annað getur þú beðið um?
Skoðaðu sumarvörurnar!
Stækkaðu heimilið í sumar - einfaldlega með því að opna út. Hvort sem þú vilt borða úti á svölum, slaka á í garðinum eða eyða tíma með fjölskyldunni á pallinum þá færð þú þægileg og endingargóð útihúsgögn hjá okkur, til að gera svæðið heima hjá þér enn stærra.