Með Nytillverkad snúa nokkrar vel valdar vörur aftur og hafa fengið yfirhalningu til að taka mið af lífsstíl og þörfum nútímaheimila. Þær eru endurgerðar í glaðlegum litum og úr nýju hráefni. Nytillverkad línan hampar hönnunarstíl IKEA sem er einfaldur, hentugur og glettinn.
Ávalt ávallt í tísku
IKEA er nokkuð þekkt fyrir stílhreinar línur og ferhyrningslaga form en mjúkar línur eru einnig mikilvægur hluti af fortíð okkar – og framtíð. Við bjóðum upp á mjúkt og fjaðurkennt með gallasvefnstólnum VÅRKUMLA, slétt og notalegt með lága SOTENÄS hægindastólnum, og ávalt og áberandi með KÄLLARHALS blómavösunum eftir Anna Efverlund.Það rofar til
Ímyndaðu þér að sofna vært á hvítu, mjúku skýi. Með ÄNGSVITVINGE rúmfötunum þarftu ekki lengur að ímynda þér! Blátt og hvítt mynstrið eftir textílhönnuðinn Sven Fristedt birtist fyrst á einu af fyrstu sængurverunum í vörulista IKEA, 1973. Árið 1981 breytti Sven mynstrinu og það birtist sem SKYAR á rúmfötum, efni og veggfóðri.Þinn sessunautur!
Snúa, sofa, njóta eða slaka. Hver stóll býr yfir ólíku hlutverki og persónuleika en það sem þeir eiga sameiginlegt er að vera stofustáss. VÅRKUMLA svefnstóllinn getur til dæmis verið hægindastóll, rúm, legubekkur eða sófi!Er appelsínugulur vænni en grænn?
Hægindastóllinn MILA eftir hönnuðinn Gillis Lundgren frá árinu 1967 sneri aftur sem DYVLINGE snúningsstóll í grænu og svörtu fyrir ári síðan og viðtökurnar hafa verið ótrúlegar! Nú uppfærum við uppfærsluna með nýjum og áberandi lit.
Anna Efverlund, hönnuður
Anna Efverlund hannaði KÄLLARHALS blómavasana ásamt poppkornsmynstrinu á KLIPPBRÄCKA vörunum. Hún vann fyrir IKEA frá 1980 til 2014 og meðal annars hannaði hún FAMNIG HJÄRTA púðann og gerði SMÅLAND leiksvæðið að veruleika. Ef þú kaupir efnið í KLIPPBRÄCKA línunni mælir hún með að sauma úr því léttan slopp eða mussu!Poppað mynstur
MODIG KORN mynstrið eftir Anna Efverlund var upprunalega hannað fyrir börn og var hluti af línu sem var innblásin af myndasögum. Poppmynstrið birtist í vörulista IKEA árið 1997 á gulum og grænum rúmfötum. Nú snýr mynstrið aftur og í þetta sinn fyrir eldri markhóp með stóru svörtu og hvítu mynstri á KLIPPBRÄCKA rúmfötum, 3 metra efni og púðaveri.„Þegar góð hönnun er endurvakin og okkur tekst að bæta hana þá hefur markmiðinu verið náð.“
Rickard ”Rille” Jonsson
Verkefnastjóri nýsköpunar, IKEA of Sweden