Sjálfbærara líf heima
Betri bómull fyrir alla
Allir elska bómull þar sem hún er endingargott og mjúkt náttúrulegt efni sem andar vel. Við viljum fara vel með umhverfið og fólk og notum því aðeins bómull af sjálfbærari uppruna í vörurnar okkar, en það þýðir að minna af vatni, áburði og skordýraeitri er notað við ræktunina og á sama tíma fá ræktendurnir meira fyrir uppskeruna. Við látum þó ekki staðar numið þar því við erum sífellt að þróa nýjar leiðir til að gera heiminn að betri stað fyrir börnin okkar.
Efni
Hvað er bómull?
Bómull er ein af vinsælustu náttúrulegu trefjunum í heiminum í dag. Vefnaðarvara úr bómull er mjúk, endingargóð og það er hægt að þvo hana á háum hita. Hún andar einnig vel og dregur í sig raka – sem gerir það að verkum að gott er að hafa hana næst líkamanum. Við hjá IKEA notum meira og meira af endurunninni bómull og kappkostum að tryggja að öll ný bómull sem við notum sé ræktuð og unnin með minna magni af skordýraeitri, áburði og vatni.
Eiginleikar
Engin krumpuð lök
Teygjulak er með teygju á endunum og helst því á sínum stað. Þannig sleppur þú við óþægindi sem stafa af krumpuðu laki á næturnar. Þú öðlast betri nætursvefn og rúmið þitt lítur betur út!