5 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Sjálfvirka afþíðingin kemur í veg fyrir rakamyndun og því myndast ekki hrím eða klaki á matvælum eða tækinu sjálfu.
Ávaxta- og grænmetisskúffan viðheldur raka og heldur matvælum ferskum lengur.
Með hraðfrystistillingunni getur þú lækkað hitastigið hratt, til að viðhalda ferskleika matvælanna og varðveita næringarefni, jafnvel þó magnið sé mikið.
Gefur frá sér viðvörunarhljóð þegar hurðin er ekki alveg lokuð.
Innbyggð LED lýsing lýsir upp hvert horn. Ljósgjafi án viðhalds, á að endast allan líftíma tækisins og auðveldar þér að sjá innihaldið.
Snertiskjár á innanverðum kælinum sýnir greinilega stöðu stillinga og mikilvægar aðgerðir, hitastig og viðvaranir.
Þú getur aðlagað hirsluna eftir þörfum með tveimur stillanlegum hillum.
Fjarverustillingin gerir þér kleift að hafa tóman kælinn lokaðan á meðan þú ert í burtu, án þess að það komi vond lykt. Ísskápurinn sparar mikla orku og frystihólfið virkar eins og venjulega.
Hólf með lægra hitastigi kælir matvælin fljótt og heldur lágu jöfnu hitastigi ásamt réttu rakastigi, svo maturinn heldur fullum bragðgæðum lengur.
Viftukæling: kælirinn er með innbyggðri viftu sem skapar lofthringrás og jafnar hitastigið og gerir þér kleift að geyma hvers kyns matvæli hvar sem er í kælinum.