1.890,-
1.190,-
Eiginleikar
Leyfðu plöntunum að veita þér innblástur
Þú getur auðveldlega prýtt rýmið með þessari Monsteru – hvort sem það er heima eða á skrifstofunni. Íslenskt heiti hennar er rifblaðka og kemur til vegna egglaga rifa sem myndast á laufunum. Hún er svokölluð ásæta sem klifrar upp aðrar plöntur til komast nær sólinni. Hún þrífst best á björtum stað innandyra en getur verið viðkvæm fyrir beinu sólarljósi. Dásamlegur og hvetjandi herbergisfélagi sem lífgar upp á heimilið.
Hvernig á að velja
Hvaða planta hentar mér og heimilinu mínu?
Frá tilkomumiklum stilkum og íburðarmiklum laufblöðum til þyrnótta kaktusa og fagurra blóma. Plöntur gera heimilið persónulegra og líflegra – og þú finnur plöntu sem hentar þér og heimilishögum þínum hjá okkur. Hugsaðu út í tegund, stærð og hvernig umhirðu plantan þarf á að halda og hvort henni sé ætlað að vera úti eða inni – ásamt því hvort hún þrífist best í sólskini eða skugga. Notaðu umhirðuleiðbeiningarnar okkar til að finna réttu plöntuna fyrir þig svo hún nái að þrífast. Að lokum getur þú valið blómapott sem þér og nýju plöntunni líkar.