Efni
Hvað er spónaplata?
Spónaplata er unnin úr endurunnum við og afgöngum frá sögunarverksmiðjum – þannig verður viður sem ekki er í réttum lit, viðarflísar og sag að auðlind í stað þess að enda mögulega sem rusl. Við notum plöturnar í hluti eins og bókaskápa, rúmgrindur, sófa og eldhússkápa. Til að verja þær fyrir sliti og raka setjum við á þær lakk, viðarspón eða filmu sem bætir útlit húsgagnsins.
Hvernig á að velja
Gerðu heimilið öruggara
Þegar barnið byrjar að skríða og klifra breytist heimilið í spennandi ævintýraland. Ungbörn skynja þó ekki þær földu hættur sem geta leynst á heimilinu. Ein þeirra eru óstöðug húsgögn sem geta fallið um koll. Hægt að fækka hættunum með því að fylgja samsetningaleiðbeiningunum og festa húsgagnið við vegg.