Efnið í vörunni er öruggt fyrir dýr og laust við skaðleg efni.
Hundar og kettir eru hluti af fjölskyldunni – og heimilinu. UTSÅDD vörulínan er hönnuð til að gera líf gæludýranna þægilegra, auðveldara og skemmtilegra.
Hundar elska að nota trýnið og leit að mat fullnægir náttúrulegu veiðieðli.
Dýnuna er auðvelt að brjóta saman og færa til.
Það er bæði skemmtilegt og nauðsynlegt að leika sér. Leikur veitir útrás.