10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Hvítar hurðir og skúffuframhliðar færa rýminu ferskt og bjart yfirbragð og allir litir regnbogans passa með! Fallegt og sígilt.
Borðplatan hentar vel í rými þar sem raki eða bleyta safnast fyrir og er þess vegna sniðug fyrir þvottaaðstöðu inni á baðherberginu.
Það er gott að hafa vask hjá þvottaaðstöðunni, til dæmis til að þvo í höndunum eða fylla/tæma skúringarfötu. Í neðri skápnum er rúmgott geymslurými fyrir stærri hluti.
Neðri skápurinn hentar vel fyrir stærri hreinsiefni og skúringarfötur en hlutir sem eru notaðir oftar geta verið í veggskápunum. Hurðir eru á öllum skápunum og skapa heildstætt útlit.
Lamirnar eru með innbyggðum dempurum sem hægja á hurðinni og loka henni bæði hljóðlega og mjúklega.