HAVBÄCK/ORRSJÖN
Vaskaskápur m/skúffum/handl/bltæki,
62x49x69 cm, drappað

60.300,-

53.300,-

Magn: - +
HAVBÄCK / ORRSJÖN
HAVBÄCK/ORRSJÖN

HAVBÄCK / ORRSJÖN

60.300,-
53.300,-
Vefverslun: Til á lager
HAVBÄCK baðherbergishúsgögnin eru stílhrein og einföld og auðvelt að aðlaga þau að þínum stíl með hnúðum eða höldum. Í þessari einingu eru tvær stórar skúffur og gott pláss á handlauginni fyrir tannbursta og sápu.
HAVBÄCK/ORRSJÖN vaskaskápur m/skúffum/handl/bltæki

Auðvelt að velja – enn auðveldara að nota

HAVBÄCK baðherbergisinnréttingarnar eru vel hannaðar og gera morgunrútínuna auðveldari. Góð byrjun á deginum

Sarah Fager hannaði HAVBÄCK og þekkir vel öngþveitið sem getur myndast á baðherbergjum á morgnana. „Þegar vekjaraklukkan hringir vaknar öll fjölskyldan og þá er baðherbergið vinsæll áfangastaður. Þá er eins gott að þú vitir hvar allir hlutirnir eru.“ Það er kannski ekki að undra að gott flæði hafi verið ein aðaláherslan við hönnun HAVBÄCK baðherbergislínunnar.

Innihaldið skiptir máli

HAVBÄCK hefur stílhreint og róandi útlit – hurðirnar lokast mjúklega og skúffurnar fela óreiðu sem myndast gjarnan í baðherbergisskápum. „En það er ekki nóg að fela hlutina. Þeir þurfa líka að vera vel skipulagðir og auðfinnanlegir,“ útskýrir Sarah. Í skúffunum eru innbyggð skilrúm til að auðvelda þetta. „Þú getur svo hámarkað nýtingu skúffanna með VISSLAÅN og BOLLÖSUND skipulagsvörum.“

Þú raðar saman baðherberginu

Baðherbergishúsgögnin koma í nokkrum stærðum og þú getur valið um ólíkar handlaugar – finndu fullkomna samsetningu sem hentar þínu baðherbergi og þínum þörfum. Breiður vaskastandur með tveim handlaugum getur til dæmis leyst morgunörtröðina á stórum heimilum. Djúp handlaug getur komið sér vel ef þú vilt hafa góða þvottaaðstöðu. Að auki eru HAVBÄCK einingarnar auðveldari í samsetningu en flestar aðrar baðherbergislínur hjá okkur. „Þú getur sett innréttingarnar saman án verkfæra. Staðreyndin er sú að við höfum náð að stytta tímann, sem það tekur að setja baðherbergisskáp saman, um 70%! Það er mjög jákvætt ef þér liggur á að gera nýja baðherbergið tilbúið.“

Sjá meira Sjá minna

Vörur sem þú skoðaðir síðast