Stillanlegir fætur til að auka stöðugleika, jafnvel á ójöfnu gólfi.
Fataskápurinn er skemmtilega gulur og færir þér mikið geymslupláss á litlu svæði. Skápurinn og hurðirnar eru grunn og því hentar fataskápurinn vel þar sem plássið er lítið.
Í skápnum eru forboruð göt sem gera þér kleift að festa ALTARLIDEN hillur í mismunandi hæð til að nýta plássið sem best.
Gerðu hirsluna að þinni með kössum í ýmsum litum og stílum.
Ónotað rými breytist í viðbótargeymslu þegar þú festir ALTARLIDEN snaga í forboruð göt á hliðarplötum skápsins.
Það er auðvelt að tengja saman nokkra LASTARE skápa með skrúfunum sem fylgja. Það eina sem þú þarft er skrúfjárn.
Mínimalísk hönnunin gerir það að verkum að skáparnir falla vel að veggjunum og gefa litlum rýmum stílhreint og létt yfirbragð.
Með LASTARE teikniforritinu er auðvelt að búa til lausn sem er sérsniðin að þér og þínum þörfum.