Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
GRÅSALA
Oft gengur mikið á við eldhús- og borðstofuborðið – við vinnum, föndrum, flokkum þvottinn og auðvitað borðum. Í GRÅSALA línunni eru sterk og endingargóð borð og stólar á hagstæðu verði. Við fengum innblástur frá mjög krefjandi umhverfi.
Fullorðnir eru kannski með blendnar tilfinningar gagnvart skólaárunum, en ef þú ert húsgagnahönnuður getur skólinn veitt þér innblástur samkvæmt Magnus Wernersson, vöruhönnuði hjá IKEA. „Líkt og skólastóll hentar GRÅSALA mismunandi líkamsbyggingum. Hann þolir mikla umgengni og endist lengi – en hann er aðeins þægilegri en skólastólarnir sem við erum vön,“ segir hann brosandi.
Teymið gerði stólinn þægilegan með bólstruðu sæti ásamt smáatriðum sem gera langar setustundir þægilegri. „Við völdum sveigjanlegt efni í stólbakið svo það dúar aðeins. Stálstöngin á barstólunum veitir góðan stuðning fyrir fæturna.“ Við fengum líka einhvern innblástur frá eldri IKEA vörum. „Sveigðar línur borðsins minna svolítið á 8. áratug 20. aldar. Tímalaus hönnun sem passar við alls konar innanhússtíl.“
Sveigjanleiki og notagildi voru ofarlega á lista við hönnun GRÅSALA. Þess vegna er hægt að stafla stólunum til að gera pláss fyrir jóga eða dansgólf. Ef þú átt tvö borð getur þú sett þau saman til að bjóða mörgum í mat. Grái liturinn var vandlega valinn. „Hann er tímalaus og hlutlaus litur með rými fyrir skraut í þínum stíl.“
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
Sterk málmgrind og endingargóð, slétt melamínhúðuð borðplata.
Nett hönnun sem fellur vel að rýminu án þess að draga að sér of mikla athygli, en jafnframt nægilega sterkbyggt fyrir hversdaginn.
Hannað til að koma vel út með GRÅSALA stólum. LIDÅS, ADDE og ÖSTANÖ stólar passa líka við borðið.
Vörunúmer 994.840.27
2 pakkning(ar) alls
Þrífðu með rökum klút og mildu hreinsiefni. Þurrkaðu með hreinum klút. Hertu skrúfurnar eftir þörfum fyrir hámarksgæði.
Aðeins ætlað til notkunar innandyra.
Fyrir fjóra.
Hægt að taka í sundur fyrir endurvinnslu eða orkunýtingu ef það er mögulegt á þínu svæði.
Passar vel með GRÅSALA, LIDÅS, ADDE og ÖSTANÖ stólum, sem seldir eru sér.
Lengd: | 121 cm |
Breidd: | 72 cm |
Hæð: | 2 cm |
Heildarþyngd: | 9,12 kg |
Nettóþyngd: | 8,08 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 19,0 l |
Lengd: | 91 cm |
Breidd: | 28 cm |
Hæð: | 8 cm |
Heildarþyngd: | 9,68 kg |
Nettóþyngd: | 9,05 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 20,4 l |
Vörunúmer 994.840.27
Vörunúmer | 994.840.27 |
Vörunúmer 994.840.27
Lengd: | 110 cm |
Breidd: | 67 cm |
Hæð: | 75 cm |
Borðplata GRÅSALA | |
Vörunúmer: | 505.154.26 |
Pakkningar: | 1 |
Lengd: | 121 cm |
Breidd: | 72 cm |
Hæð: | 2 cm |
Heildarþyngd: | 9,12 kg |
Nettóþyngd: | 8,08 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 19,0 l |
Grind GRÅSALA | |
Vörunúmer: | 905.154.34 |
Pakkningar: | 1 |
Lengd: | 91 cm |
Breidd: | 28 cm |
Hæð: | 8 cm |
Heildarþyngd: | 9,68 kg |
Nettóþyngd: | 9,05 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 20,4 l |
Finndu vöruna í versluninni
2 pakkning(ar) alls